Ađalvalmynd

Auglýsing

Teljari

Leikur dagsins

Gagnasafn

Leit

Innskráningar kubbur

Könnun

Hver verđur ólétt nćst???????

ENGLARNIR OKKAR

Prófíll

"LEYNDARMÁL KUNTUNNAR"

ţađ er okkar ađ vita og ţitt ađ komast ađ !

Klukkan

BLOGGARAR

Atburđarteljari

Nýjast á B2.is

Halló halló hallómiss kuntur.is

shiiiiiiiiiittttttt hvað þið eruð lélegar að blogga stelpur !!!


núna er átak í gangi og setja svo inn nýjar myndir !!!!!!!!!!!!!


kveðja Elsa yfirkunta

Ég á afmćli í dag ;)miss kuntur.is

Sælar skvísur !

þá er maður að verða hundgamall en skvísan er 25.ára í dag og ekkert að yngjast hahaha


en allaveganna þá hlakkar mig rosa til að sjá ykkur á morgunn

kisskiss Elsa afmælisstelpa hahahahaKoss

Jćja elskurnar mínar :)miss kuntur.is


ég get byrjað að segja frá því að dóttir mín hún Carmen Lea er aftur orðin veik en hún var rosalega veik með yfir 40 stiga hita í þarsíðustu viku , fór á pensílínkúr þangað til síðasta sunnudags og byrjaði með háan hita í gær aftur , báðir barnalæknarnir hennar eru í fríi svo læknirinn sem ég fór til áðan sagði mér að bíða og sjá til en heldur líklega að hún sé með vírus eða inflúensuna Fýldur svo það er lítill friður á mínu heimili fyrir ÖLLUM pestum sem fyrirfynnast en ég held að dóttir mín sé búin með sinn veikindaskammt fyrir lífstíð !!!

á síðustu helgi var ég og Carmen Lea einar heima í kósíheitum en Einar var í Eyjum að hjóla (lenti í snjókomuni miklu hahahaha svo það heppnaðist ekki eins og þeir vildu hahahaha)
en við áttum MJÖG kósí mömmuhelgi sem ég skálaði að sjálfsögðu yfir hvítu og bjór þegar hún var farin að sofa (ekki að skála að hún væri farin að sofa heldur að njóta þess að vera ein heima )

þarsíðasta vika var frekar erfið en ég var að vinna frá 8-22 ca flest kvöldin en skvísan sem vinnur hjá mér var heima með veika strákinn sinn en auminginn tæknidúddinn sem er búinn að vinna við hliðina á mér síðan í ágúst er dæmdi barnaníðingurinn sem var í DV í síðustu viku og var rekinn á stundinni þegar það komst upp svo ég var alein að vinna og fékk litla sem enga hjálp ... en djöfulsins VIÐBJÓÐUR þessi gaur sem var að vinna með mér hann hefur oft og mörgum sinnum talað við dóttur mína og mér líður bara mjög illa yfir því !!! og hann er sko jafngamall og ég svo þetta er bara næsti Steingrímur Njálsson !!!


en allavegana þá er ég aðeins að jafna mig á þessu og eins og flestar aðrar helgar þá verð ég ein heima með veiku stelpuna mína því Einar VERÐUR náttúrulega að eyða eins miklum tíma á hjólinu og hann getur !!!


pínu pirruð út í lífið og tilveruna en ég dýrka ykkur samt kunturnar mínar Koss

kossar og knúsar frá mér ykkar "skvísukunta" Elsa KossGlottandi

miss kuntur.is

Sælar, dömur!!
Þetta er orðið svona vikulegt thing hjá mér, að blogga. Sit alltaf og horfa á barnatímann með syni mínum, og svona yfirleitt hef ég miklu meira gaman að þvi heldur en hann, og svo byrja ég að rifja upp vikuna og fara yfir allt sem hefur gerst. 
En eins og ég sagði í síðustu viku þá fór ég með kallinum mínum á food and fun á Nordica. Alget æði, rosa flott allt saman og geggjaður matur. Svo sátum við með vinnufélögum hans Óttars á borði og þeir eru alveg milljón, hló úr mér líftóruna. Og áfengið var fljótandi, maður var varla hálfnaður með glasið áður en það var fyllt aftur. Svo var Gospel kórinn að syngja og eftir aðeins of marga drykki stóðu allir upp og byrjuðu að syngja um Jesú. Svoldið fyndið að sjá allla stóru kallana og allt merkilega fólkið í þjóðfélaginu frelsast. 
Svo lá leiðin í afmælið hennar Rósu. Ég held að ég hafi átt innkomu ársins, þar sem ég var orðin frekar tipsy þá fannst mér mega cool að spakra upp hurðina og öskra: ég er komin gott fólk, ég er komin!!!!Ullandi
En rosa flott veisla hjá henni Rósu, snittur og bolla og geggjaður DJ, MC Dóri Djigga!!!  Glottandi Ég skemmti mér konunglega, dansaði af mér rassgatið ( afsakið orðbragðið) og svar víst pínu bara í mínum eigin heimi, þar sem ég er bara æðisleg og frábær!!! Þið sem þekkið mig, vitið alveg hvernig ég er þegar ég fer í svona ham. Mér finnst ég allavona mjög skemmtileg, spurning hvað öðrum finnst......
Eftir afmælið skelltum við Óttar okkur yfir á apótekið, gef þessum stað nokkra mánuði. Hann er alveg flottur og allt það en samt illa hannaður og bara vinsæll því hann er nýr. Eftir einn drykk á Apótekinu, röltum við yfir á Vegó. Sá staður stendur alltaf fyrir sínu.  Elska tónlistina þarna og stemmninguna, vildi samt óska þess að dansgólfið væri stærra.
Á sunnudeginum skeltum við okkur í Bláa Lónið með mö og pa. Heví nice, mæli með þessu næst þegar þið verðið í þynnkunni. Vorum alveg í tæpa 3 tíma, enda kostar þetta handlegg og um að gera að fá sem mest fyrir hann. Tók eftir einu og fannst það frekar merkilegt. Þegar ég var í sturtu þá kom rúta með þýskum túristum og alllar konurnar sem komu inn fóru bara í sundbolinn sinn og útí. Þeim datt ekki í hug að fara í sturtu. Og svo þegar starfsstúlkan fattaði þetta þá þurfti hún að standa í hurðinni og láta allar sem fóru ekki í sturtu og ætluðu bara beint ofaní, snúa sér við og fara í sturtu. Kellingarnar voru að sjálfsögðu mjög pirraðar með þetta og muldruðu eitthvað á milli sín á þýsku og öðrum tungumálum, og á tónum að dæma þá var það ekki neitt jákvætt. En þarna stóð ég ( og þið sem þekkið til, vitið að ég er snillingur í að vera lengi í sturtu) og horfði undrandi á þetta atriði. Og nú spyr ég, erum við eina þjóðin sem þvær sér áður en við förum ofaní??? Ef svo er þá mun ég aldrei aftur fara í sundlaug erlendis!!!!!
En vikan var annars annsi róleg, gerði lítið annað en að læra og hanga heima. Man allavona ekki eftir neinu sem ég gerði.
Svo er ég bara að fara uppí bústað með bekknum mín um á eftir. Leigðum okkur bústað hjá Apavatni. Hann er 270 m2 og með pool borði, flatskjá, arin og heitum potti. Svefnplás fyrir alveg 30 manns held ég. Já þetta verður skrautlegt, erum alveg í kringum 20 sem verðum í kvöld. Sumir fóru í gær og svo ætlum við stelpurnar að leggja í hann um 3 á eftir. 
Ég vona að þið hafið það gott elsku kunturnar mínar og þar til næst...peace out!!!
Lera eðalkunta 

Rósin okkar á ammćli!!!miss kuntur.is

Sælar kæru kuntur,
Já undanfarnar tvær vikur hafa verið ansi viðburðamiklar. Alla þarsíðstu viku var ég bara í prófum og skila ritgerðum og verkefnum, bara crazyness. Svo kíkti ég reyndar á miðvikudagskvöldið á konukvöld Thorvaldsen, voða fínt. Fékk mér að borða með Rósu, systrum hennar og mömmu. Mjög gaman, líka ansi langt síðan ég hitti þær allar. Þetta var svo ansi fínt hjá þeim, nóg að gera. Snittur og endalaust af áfengi í boði. Og þar sem við erum að tala um mig þá auðvitað verð ég að smakka allt nýtt á markaðinum, og endaði frekar drukkin. Þurfti að skilja bílinn eftir niðrí bæ og fá far hjá Lilju vinkonu í skólann daginn eftir. Var alveg ágætlega þunn á fimmtudaginn í skólanum og fór í efnafræði próf. Það besta við þetta er að mín fékk bara 9,5 í prófinu og þar með sannaði kenningu mína að áfengi hefur góð áhrif á mig og heilann minn!!!! Svo var hjálpartækja kynning, skartgripasmíðakennsla, förðunarfræðingur og spámaður. Svo má ekki gleyma olíubornu strákunum, fann pínu til með þeim. En svo fer ég að hugsa, hvernig haga drukknir karlmenn sér við fáklæddar konur??? Og þá vaknar spurninginn, getur þetta fólk ekki bara sjálfu sér um kennt, enginn að neyða það til að fækka fötum og glenna sig!!!!
Heyriði svo fór ég til spámanns, og hann bara sagði mér það að sonur minn hefði verið pabbi minn í fyrra lífi og hann ákvað að koma til mín og færa mér gleði þar sem lífið mitt væri svo erfitt!!! Svo ég kom heim frekar, drukkin, kíkti inn til Viktors og hvíslaði: Góða nótt pabbi!!!
Svo var það helgin, skammast mín hálfpartinn fyrir að segja það en á föstudagskvöldið fór ég að sofa klukkan 21:30. Ég reyndar bætti fyrir þetta á laugardagskvöldið. Fór í saumaklubb heim til Stefaníu vinkonu uppá Skaga. Það var eitthvað bekkjarpartí í bænum svo ég ákvað að fara og hitta krakkana niðrí í bæ, sem var frekar heimskulegt þar sem klukkan var orðin tvö og auvitað hefði ég bara átt að fara heim að lúlla. En nei, ég var eitthva að þvælast niðrí bæ til 5. Fór svo að horfa litla Bró keppa í fótbolta á sunnudeginum og síðan skelltum við familian okkur í sund.
Þessi vika var mun rólegri í skólanum, svo skellti ég mér í bío með Rósu á miðvikudagskvöldið, sáum Jumper. Mæli með henni, og svo ég sjúklega sætur gaurinn sem leikur í henni. Á í erfiðleikum með að muna um hvað myndin er, var svo upptekin að glápa á hann og láta mig dreyma!!!
Á fimmtudagskvöldið skelltum við fjölskyldan okkur í sund og svo út á borða á Gamla vínhúsinu, sem er gamli A. Hansen. Mæli alveg með matnum þar, krúttlegur staður og góð þjónusta. Ekkert rosalega dýr. Á leiðinni heim stoppuðum við í Adam og Evu og ég fékk pakka frá kallinum mínum. Koss
Svo á hún Rósa okkar afmæli í dag og ætlar hún að halda veislu á Thorvaldsen, vona að þið mætið allar!!!!
Er reyndar að fara á eitthva Gala-kvöld vegna Food and Fun á Nordica í kvöld með Óttari og vinnufélögum hans. Er ekki mikið að nenna því þar sem ég ætla ekki Gala í bæinn eftir á sem þýðir að ég þarf heim og skipta um áður en ég fer til Rósu, sem er bara vesen og svo er frost úti og mig langar ekkert sérstaklega að vakna með blöðruólgu á morgun!!!
Allavona, þá ætla ég að fara að gera jóga og skella mér svo í bío með strákunum. Eigið góðar stundir þar til næst!!!!! Lera eðalkunta  xxxxxx

Nýjar mýndir!!!!!miss kuntur.is

Sælar kuntur, setti inn nýjar myndir áðan,þorði ekki öðru það sem frú elsa er alltaf að skammast í okkur. Ullandi Þið hinar takið bara mig til fyrirmyndar!! Enjoy
Lera eðalkunta xxxx

Nýtt ár og breyttir tímar!!!miss kuntur.is

Komiði sælar kunturnar mínar,
ég vona að þið fenguð allar sms frá mér í dag og munið taka vel í þetta.
Ég ætla sem sagt að brjóta ísinn og blogga fyrstu færsluna á þessu ári. Glottandi
Við erum búnar að vera rosa óduglegar að hittast og slúðra( sökum vinnu, náms og barna) og því finnst mér tilvalið að fara að vera duglegar að blogga.
Svo á hún Rósmunda ammæli eftir nokkra daga. Það var nú talað um eitthvað kuntudjamm á sínum tíma en ekkert varð úr því og það er nú bara orðið ansi langt síðan við gerðum eitthvað saman svo mér finnst tilvalið að hún Rósalind haldi party. Svo við getum nú slett úr klaufunum og gert einhverja skandala.
Ég er nú samt búin að vera rosa stillt og ekkert búin að gera í tvær helgar núna (sem er þannig séð met, þar sem ég hef ekki verið svona lengi edrú síðan ég hætti að vinna í ágúst). Segið svo að það sé ekki gaman að vera í skóla. Talandi um það þá erum við Lilja vinkona ( í skólanum) ásamt nokkrum öðrum í bekknum að fara að kynna námið á háskóladeginum sem verður næsta laugardag í ráðhúsinu. Er frekar spennt, held að það verði bara gaman og svo fer maður á kynningar hjá öðrum deildum ( þá kannski kviknar einhver pera og ég ákveði hvað mig langi að læra). 
Annars hef ég ekki frá svo miklu að segja svo ég er bara að bulla og vona að ykkur leiðist ekkert svakalega mikið að lesa þetta blessaða blogg mitt. Ég fór reyndar að hjálpa Elsu í einhverri veislu á laugardagskvöldið, bara leiðinlegt. Var alveg búin að gleyma hversu súrt þetta er og var búin að gleyma hvernig maður heldur á fleiri en tveimur diskum í einu ( hef sko ekki gert þetta síðan ég varð ólétt sem gera rúm 4 ár). Ég myndi sko skjóta mig í hausinn ef þetta væri atvinna mín. Væri frekar til í að vinna við að þrífa klósett!!!!
Já talandi um börn þá er hún Rakel okkar alveg að fara að eiga, spennó. Og eruði að átta ykkur á að sonur minn er að verða 4 ára!!!! Fáránlegt hvað tíminn líður hratt, hann stækkar og stækkar og ég eldist .....ekki neitt!!!!
Anywho, þá er þetta orðið fínt af bulli í bili!!! Og nú vitiði hvað er að frétta af mér en whats up with u guys
Ástar kveðja, Lera eðalkunta xxxxxx

Nýjar Myndir 24.október !!!miss kuntur.is

Jæja núna þurfa þær kuntur sem eru búnar að vera duglegar á myndavélinni að fara að setja inn þær myndir því ég hef ekki verið mjög dugleg svo einu mydirnar sem ég átti voru úr afmæli Viktors og Carmenar Leu en þetta eru aðalega myndir af krílunum okkar en ekki okkur svo í alvöru þetta er ekki erfitt að blogga pínu reglulega og henda inn einhverjum myndum !!!

ég borgaði auka svo við gætum sett fleiri myndir inn því á tímabili var ekki hægt að hlaða inn myndum svo það er kannski lágmark að nota það !!!


SKAMMISTIÐ YKKAR Ullandi



kveðja Elsa kunta

kallinn ađ verđa 30 og prinsessan orđin 1 árs !!!miss kuntur.is

Jæja þá er maður að fara út að borða með kallinum á Grillið í kvöld í tilefni af 27 ára
afmælinu hans á fimmtudaginn síðastliðinn ...
en vááá hvað tíminn flýgur og ekki er maður að yngjast !!! kallinn að nálgast þrítugt og dóttirin strax orðin 1 árs Öskrandi ég verð orðin sjálf þrítug áður en ég veit af og ekki búin að gera 1/3 af því sem ég ætla að gera um ævina Ullandi

Ég held að maður verði að hunska sér í skóla og fara að lifa lífinu eins og maður vill hafa það í framtíðinni en ekki alltaf að  slá öllu á frest því við vitum alveg að slá einhverju á frest verður aldrei gert (í flestum tilvikum) en ef það verður ekki tekið í taumana fljótlega þá líður lífið bara fram hjá okkur án þess að áorka því sem við viljum Hissa

ohhhhhh mér leiðist bara í vinnunni en það verður rosa gaman að fara á grillið í kvöld þó svo maður sé komin á gamalsaldur en Solla og Róbert vinir okkar ætla að koma með okkur ...

sjáumst hressar í næsta spiló miss oldý.is

Guđrún kunta 26.ára 19.september ;)miss kuntur.is

Já við fórum og hittum hana Guðrúnu okkar á miðvikudaginn á players og bauð hún okkur upp á súkkulaði köku en flestir fengu sér nú öl til að skola henni niður ;)
hún hefur sko stækkað helling skvísan enda ekki við öðru að búast ...

Svo er djamm á laugardaginn sem hefst með grillveislu hjá skvísunni og mæta þeir sem komast en það verður tekið vel á því

með kveðju Elsa yfirkunta

p.s. Sandra þú ert geggjað dugleg að blogga og ég kaus þig aldrei ;)
Síđa 1 af 4